fimmtudagur, mars 30, 2006

Sælir félagar
Ég ætla að gera þetta fyrsta blogg mitt á þessari síðu soldið gagnrýnið..... en hvað um það . Það fyrsta sem ég vildi nefna er glötuð mæting á æfingar , er áhuginn á tuðrusparki að minnka eða eru menn orðnar svo miklar prímadonnur að það má varla blása úti að þá nennir enginn að mæta. ég veit að núna hugsa margir " en boltinn er alltaf á þriðjudögum og þá er meistaradeildin !" síðast þegar ég vissi þá hefur það ekki drepið neinn að spila bolta á mánudögum eða jafn vel á fimmtudögum ! þetta er svo sem það eina sem ég vildi koma á framfæri.. hélt að það væri meira , ég vona elsku kútarnir mínir að við náum að breyta þessu og skemmta okkur almennilega úti í -3° og 7ms.

kveðja Roses

p.s. ungliðaakademían lýtur rosalega upp til ykkar og þess vegna verðum við að vera góða fyrirmyndir , þeir mæta í öllum veðrum og vindi . ( þeir líta það mikið upp til ykkar að þeir klæða sig allir eins og Haffi , hlusta bara á Radiohead eins og Raggi , þeir kveikja ekki á útvarpinu nema á mánudögum milli 22 og 00:00 , og svo hringdi kennarinn þeirra í mig og sagði mér að öll heima verkefnin þeirra líta út eins og blaðagreinar ! skrítið ..)

mánudagur, febrúar 27, 2006

Það er 6 stiga hiti í Reykjavík og 6 stiga frost í New York!
Þökk sé gróðurhúsaráhrifunum og hlýnun jarðar þá er veturinn á Íslandi ekki neitt til að tala um lengur. Sú var nú tíðin að maður þurfti að moka sig út úr innkeyrslunni fram í miðjan apríl en það er ekki lengur, ó nei.
Við höfum ákveðið í sameiningu að slútta þessum blessaða sal sem enginn lifandi sála týmdi að borga fyrir hvort eð er. Í stað 51.000 krónu gíró er það núna 24.000 krónu gíró sem þarf að borga og ef við gefum okkur það að 10 mans borgi þá eru það skítnar 2400 krónur á haus. Gerum þetta upp á miðvikudag .

Þar sem vorið er í óða önn að koma þá er kjörið að nota einhverja af þessum sparkvöllum sem eru út um alla borg. Það er einn góður í Rimaskóla, einn góður í Álftamýrarskóla osfrv. Komið með tillögur og mætum klukkan 20:00 á þriðjudag á einhvern góðan völl, þá höfum við líka aðeins þægilegri tímaramma, ekki bara 50 mínútur slétt þangað til Júgóslavneska kellingin í Árbæjarskóla kemur og rekur okkur út. Sennilega eru einhvern börn á þessum sparkvöllum en við spörkum þeim bara út af vellinum.

HommiHommiHommiHommiHommiHommiHommiHommi

fimmtudagur, febrúar 23, 2006

Síðasti sjens!
Þar sem ég var svo góðhjartaður að taka þennan blessaða sal á mitt nafn og mína kennitölu þá finnst mér algjör lágmarks virðing að menn borgi þennan 5000 kall strax!
Ég er farinn að fá ítrekanir og hótanir frá Landsbankanum á mitt nafn og mína kennitölu inn um lúguna hjá mér útaf slugsa-gangi ykkar sem eigið ekki efni á því að borga þetta en eruð samt fullir allar helgar! Ég er kominn í einhverja innheimtumeðferð hjá Landsbankanum vegna ógreidds reiknings á mínu nafni! Og ég hélt í sakleysi mínu að þetta gæti gengið smooth og að það væri ekki fullt starf að rukka fullorðna menn um peninginn!!!
Það er alveg á hreinu að ég lána mína kennitölu ekki við svona skítalabba aftur ef við skyldum leigja sal næsta vetur!
Ég er svona pirraður yfir þessu vegna þess að þetta er á mínu nafni!!!
Það er minnsta mál í heimi að hringja í þjónustuver bankana og taka 5 þúsund krónu yfirdrátt sem dettur sjálfkrafa út um næstu mánaðarmót, flest allir eiga líka foreldra sem geta lánað þeim 5 þúsund krónur. Það er kominn mánuður yfir eindaga! Ef þið hafið einhverja ábyrgðartilfinningu þá borgið þið núna!

Þjónustusími KB Banka: 444 7000
Þjónustusími Landsbankans: 410 4000
Þjónustusími Íslandsbanka 440 4000

Steingrímur, Stebbi, Steini Róses, Raggi Sverris, Daddi, Haffi.

Reikningur: 0525-14-601184
Kennitala: 181184-2649

Það er hámarks óvirðing að ég sé að gjalda fyrir það hvað þið eruð tregir!

þriðjudagur, febrúar 21, 2006

Ég vill bara lýsa frati á þá sem sögðust ætla að mæta og mættu svo ekki... Þið eruð kúkalabbar og þettamál á klárlega að fara fyrir stjórn... Þetta gengur bara ekki svona..Og ég gallharður nallari ákvað að mæta í boltann og viti menn, það mæta fimm og ég missi af Arsenal eiga frábæran leik og það er ekkert hægt að segja að það se á hverjum degi þessa daganna...

Fuck your couch rúnkarar...

mánudagur, febrúar 20, 2006

Kæru indælispiltar!
Til hamingju með þetta glæsilega útlit! Smá frískun á útliti gerir öllum gott. Þessi síða er reyndar ekki alveg tilbúin enþá, en verður það án efa innan skams . Það á eftir að setja myndir inn í "leikmenn liðsins" en svo er ég búinn að snitta að hinu og þessu.
Endilega fjölmennið í botla á þriðjudag, jafnvel þó svo einhver písoffsjitt lið séu að spila í meistaradeildinni.
Notið komentakerfið hérna til tjáskipta og lifið heilir.

Valgeir vefsíðuhönnuður.

mánudagur, febrúar 13, 2006

boltinn verður á sínum stað á þriðjudaginn. dráttarvextirnir hrannast upp á hraða ljóssins. þetta er síðasta skipti sem ég eyði kröftum mínum í að væla í fólki að borga.

boltinn verður á sínum stað á þriðjudaginn. dráttarvextirnir hrannast upp á hraða ljóssins. þetta er síðasta skipti sem ég eyði kröftum mínum í að væla í fólki að borga.

miðvikudagur, febrúar 08, 2006

Greiðslustatus:

Ég veit að eftirfarandi snillingar eru búnir að borga.
Valli, Steinþór, Jón Brynjar.

Raggi, Stebbi, Steingó, Heimir, Daddi, Sæmi, Róses, Haffi mega endilega gera sér ferð inn á heimabankan sinn og leggja inn á reikningsnúmerið sem hægt er að finna í "um liðið" hér til hægri.

Einnig hefur liðið skráð sig í 7 manna bolta næsta sumar -www.carlsbergdeildin.net.
Ég held að það gæti verið góð stemmin,g c.a 10 leikir yfir sumarið - 2 x 25 mínútna leikir og spilað á hálfan völl, bara kósí. Þessi deild byrjar í maí og endar í lok ágúst og eru engir leikir í júlí mánuði, svo þið sjáið að þetta er passlega mikil alvara í þessu. Sultur eins og við höfum ekki gott af meiru.

Ef mér skjátlast ekki þá gætu eftirfarandi verið til í að reyma á sig skóna í sumar: Valli, Steinþór, Haffi, Steingó, Heimir, Daddi, Róses, Örri og fleiri.
Spurning með Plebban, JB, og Ragga þar sem þeir verða ýmist í Dannmörku eða leggja meiri metnað í knattspyrnuferilinn en UMFJ getur boðið upp á...
Kannski þurfum við signa einhverjar faldar perlur til að hafa squad-ið þokkalega skipað. Bara svona vangaveltur.

Bottom-line í þessari færslu er samt: BORGA!!!

föstudagur, febrúar 03, 2006

51.000 krónu gíróseðill er enþá ógreiddur.

Segjum sem svo að Steinþór, Valli, Raggi, Haffi, Stebbi, Jón Brynjar, Steingó, Daddi, Heimir, Steini Roses og Sæmi greiði gjöldin þá er það 51.000/11 manns sem gerir 4636 krónur á mann eða rétt undir 1000 krónur á mánuði.
Ef það er einhver sem ætlar ekki að vera með í því að greiða þessi gjöld þá verður hann að láta vita "med det samme".

Það er eindagi í dag. Ekki gjalddagi, heldur eindagi.

Ef við göngum ekki frá þessu um helgina þá erum við líklega búnir að missa salinn.

Ég vil fá komenta flóð núna.

þriðjudagur, janúar 31, 2006

Sælir félagar !
ég var nú bara að spá hvort það yrði góð mæting í kvöld . Því ekki nenni ég að taka frí í vinnunni og svo kemur enginn !